Laugarvegurinn 2006 - hrein geđveiki!

18. júlí 2006 klukkan 04:17

Ég fékk þá flugu í höfuðuð fyrir nokkru síðan að taka þátt í Ultra Maraþon enda brósi búinn að hlaupa tvisvar og Höskuldur frændi sex skipti.
Hlaupið er Laugarveginn, frá Landmannalaugum til Þórsmerkur og er vegalengdin litlir 54 km.

Ég var að sjálfsögðu frekar duglegur að æfa enda ekki stefnan að beila á miðri leið, það væri það bara aumingjaskapur.
Ég var búinn að hlaupa einhverja tugi 10km hlaupa, nokkur lengri hlaup, svona 30km og svo hlaupa nokkru sinnum á Esjuna.

Ákvörðun mín að fara í þetta hlaup var svo sem ekki stórmál en það sem beið mín var aðeins meira en litlir 54km. Við erum að tala um 10-20m/sek í mótvind, slabb, skítakuldi, haglél, sandstormur og endalaus fjöll og brekkur sem ætluðu aldrei að enda.

Þetta var satt að segja það allra erfiðasta sem ég hef á æfi minni gert og það er ómögulegt að lýsa þeirri gleði sem ég upplifði þegar ég komst loks á leiðarenda.

Ég hlóp þetta á 7:53:52, stefnan var reyndar að taka þetta á innan við 7 tímum en vegna verðurs var það ógerlegt en það verður að sjálfsögðu tekið létt á næsta ári Glottandi
Var samt lang yngsti hlauparinn á svæðinuGlottandi

Ég hendi svo eldheitum myndum af þessu öllu inn á morgun Ullandi

Einar Hallsson

Prófin búin, sumariđ komiđ…Vinna og tóm gleđi

16. maí 2006 klukkan 04:09

Jæja það er ekkert lítið hvað ég er latur að blogga enda átti ég ekki von á neinum stórum hlutum í þeim efnum.

Á föstudaginn kláraði ég seinasta prófið mitt sem var vægast sagt yndislegt, það var að sjálfsögðu mikið um grill og gleði um helgina eins og vissulega fylgir því að klára prófin Svalur

“Sumarið er tíminn” segir í nokkrum lagabútum en það er nú samt ekki svo gott að það sé bara frí eins og þegar maður var lítill og slæpaðist bara um götur borgarinnar með hinum og þessum leikjanámskeiðum og byggði kofa og framleiddi grænmeti og þess háttar vitleysu.
Maður þarf víst að fara vinna og ég er svo helvíti heppinn að vera með gæða vinnu hjá byggingafyrirtækinu Nýmót svo ég verð að byggja hús fyrir allt snobbaðasta einbýlsihúsapakkið í bænum í allt sumar Brosandi

En þó svo að það fylgi sumrinu smá alvara, puð og vinna held ég að það einkennist mest megnis af endalausum útilegum, eldhressum tjúttum og tómri gleði svo nú er bara málið að njóta alls þess sem sumarið hefur að bjóða í botn ;)

..hlakka til að sjá alla hressa út um allt í sumarSvalur

 

Einar Hallsson

Bloggleysi, próf og Eyjar 2006

27. apríl 2006 klukkan 05:41
Jæja það er búið að vera bölvað bloggleysi hjá mér en það hefur sko aldeilis margt drifið á daga mína frá því ég kom heim á klakann á ný.

Ég er búinn að læra slatta, Halli klippti sig, mamma fékk kannski geggjaða vinnu og já brúin sem er rétt hjá systur minni í Aalborg hrundi þegar það var verið að reysa hana.. ekki trastvekjandi að hugsa til þess að ég keyrði undir þessa brú Óákveðinn
Brú sen var ca. 2 km frá því sem ég var í Aalborg


En ég er enn á lífi og vel það og við Halli erum farnir að skipuleggja Eyjar 2006 enda ekki annað hægt þegar það á að taka þetta með stæl!
  • Öll eyjalögin komin hér til hliðar á síðnnuGlottandi
  • Halli búinn að gera söngbók
  • Halli byrjaður að klippa botninn af tjöldum
  • Búnir að brugga slatta af Kiwi víni
  • Búnir að bóka far með Herjólfi
  • Erum að fara að kaupa hatta
Ég ætla svo að minna alla tapara sem halda að það sé dýrt að fara til Eyja og ætla á einhvern skítapleis eins og Akureyri að það er bull.
Ég skemmti mér vægast sagt illa þar enda Halli að senda mér video af öllu og myndir og gleðin í Eyjum var án efa mun betri enda Halli ekki þekktur fyrir neitt annað en að vera þar sem fjörið...Glottandi

En áður en sumarið kemur munu allir námsmenn leggjast í dvala en ég mun svo vakna frá prófa dvala og sumarið mun bíða með öllum þeim yndislegu stundum sínum þann 12. maí... Farinn að læra GrátaÖskrandi

Þangað til næst... bókið far með Herjólfi
Glottandi

PS.
ef þið viljið tryggja það að það verði geggjað í Herjólfi komið þá með mér, Halla, Jóhanni og Leibba
Glottandi Við förum með eftirfarandi ferjum:
  • Til Vestmannaeyja, 3. ágúst kl. 12:00, komutími: 14:45
  • Til Þorlákshafnar, 7. ágúst kl. 18:00, komutími 20:45
Einar Hallsson

Á Djammiđ í Aalborg međ Bjarka og Jóni

17. apríl 2006 klukkan 05:29
Jæja kæru vinir og aðrir meistarar. Ég kíkti á Djammið með Bjarka brósa og Jóni, manninum hennar Önnu systur.Glottandi

Við byrjuðum á því að fara á spilakvöld hjá íslendingafélaginu hérna í Aalborg og kostaði bjórinn þar summu tveggja teninga sem maður kastaði, semsagt minnst 2kr danskar og mest 12kr.
Það var að sjálfsögðu teygað af öli og svo var ég plataður í spilið Fimbulfamb sem er al mesta vitleysa sem ég hef prófað, fullt af súrum íslesnkum orðum sem maður á að giska hvað þýða.

Eftir alla gleðina á spilakvöldinu lá leiðin niðrí bæ og skellti ég mér með Bjarka, Jóni og Valla vini hans á Götuna eins og hún er kölluð. Það er alltaf alveg fáránleg stemming þar og maður heldur að maður sé bara í sólarlöndum.Svalur

Bjarki hafði audda drukkið nokkrum bjórum of mikið og var sofnandi útum allt og inná öllum stöðum, hann var komin hálfa leið með að hözla einhverja íslenska 3ja barna móðir sem ætlaði að hitta hann niðrí bæ en audda þurftum við að fara heim áður en það gerðist.
Bjarki skemmdi alveg kvöldið fyrir mér með því að vera hund leiðilegur og pirrandi eins og honum einum er lagið þegar hann kemst í vínÓákveðinn

En samt sem áður hel flippað kvöldUllandi

Hilsen fra Denmark,
Einar
Einar Hallsson

Sótti bíl til Ţýskalands - Hálsrýgur dauđans

14. apríl 2006 klukkan 20:41
Kallinn fór með brósa bílabraskara í gær að sækja bíl til Þýskalands sem hann er að fara að flytja inn.
Við fórum á bílaleigubílnum sem fjölskyldan er með hér í DK og þutum niðreftir, á leiðinni sváfum við í bílnum við einhverja bensínstöð.
Þegar við vöknuðum sóttum við bílinn og brunuðum uppeftir og ég fékk að vera á BMW-inum - BMW 325 Glottandi

Bjarki byrjaði á að keyra hægt og ég elti hann til að venja mann við þann mikla hraða og reglusemi sem ríkir á Þýskum þjóðvegum enda ekki til hámarkshraði þar nema það sé umferðateppa, viðgerðir eða slys.
Eftir ekki langan tíma voru kallarnir að bruna upp brautina til DK á 160-185km hraða með græjurnar í botni - bara í lag Svalur

Allt gekk vel og við komumst á leiðarenda á réttum tíma.. Nema daginn eftir fékk ég einhvern ógeðslegasta hálsrýg.. Ég er að glíma við hann núna með slatta af Íbúfen og Parkódín Brosandi

Hilsen fra Danmark!
Einar Hallsson

Kallinn í Köben

12. apríl 2006 klukkan 03:26
Jæja ég skellti mér í Danaveldi með fjölksyldunni að heimsækja systur mína, mannin hennar og tvíburana þeirra.

Það er búið að vera meira en lítið frábært og gleðin rétt að byrja því ég kem ekki heim firr en 18. apríl.

Ég er í Aalborg og það er alveg fáránlega gott djamm hérna, gatan sem aðal stuðið er á er einfaldlega bara kölluð Gaden og það er eins og að vera kominn aftur til Portúgal að fara þangað... kreyjsí!

Ég stend að sjálfsögðu við stóru orðin og eins og ég kofaði er síðan í fullri vinnslu og þegar komnar tæpar 500 mynir og ég held áfram að bæta við þetta á næstu dögum Glottandi

Njótið myndanna!

Hilsen,
Einar den Danske
Einar Hallsson

Kallinn farinn í bloggiđ

15. mars 2006 klukkan 06:06
Já það er satt, kallinn er farinn í bloggið og vonandi kominn til að vera, sjáum tilGlottandi
Einar Hallsson

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...